152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[21:33]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið og langaði í minni seinni ræðu að fara aðeins inn á aðrar brautir. Það hefur verið talað svolítið um það frá því að innrásin hófst, og þá með vísan í það hvernig sendiherra Rússa á Íslandi hefur talað í fjölmiðlum og beitt sér og komið einkennilega fram um margt, hvort það eigi að vísa honum úr landi. Mig langaði að inna hæstv. ráðherra eftir því hvort ekki þurfi aukinn þunga í þá umræðu í ljósi þess hvers konar ástand blasir við okkur. Rússar eru að hörfa úr einu víginu í annað og við erum að horfa á hvernig lífið er murkað úr saklausum borgurum, ekki í tugatali heldur í hundraðatali, og aðfarir þar allar eins ömurlegar og hægt er og eiginlega ekki hægt að lýsa því með orðum hversu hræðilegt ástand blasir okkur þar við. Ég vil spyrja hvort þetta kalli á sterkari diplómatískar aðgerðir þegar kemur að Rússum og veru þeirra hér á landi í sendiráði og þá hvaða afleiðingar slíkt gæti haft. Ef hæstv. ráðherra gæti kannski aðeins komið inn á það.

Svo langaði mig líka aðeins að spyrja, af því að talsvert hefur verið talað um kjörræðismann Hvít-Rússa, Moshensky, í umfjöllun sem ég veit að hæstv. ráðherra þekkir mjög vel í fjölmiðlum. Þá hefur verið talað um það hvort Íslendingar hafi beitt sér fyrir því að hann yrði ekki þarna á ákveðnum lista sem fellur undir efnahagsþvinganir. Við höfum mikið rætt um það hverjir efnahagslegir hagsmunir okkar eru í samhengi við kjörræðismann en mig langaði að spyrja hvort þessi tiltekni kjörræðismaður hafi þurft að sinna (Forseti hringir.) einhverjum borgaralegum verkefnum eða einhverri borgaraþjónustu gagnvart Íslendingum í Hvíta-Rússlandi, vegna þess að við höfum alltaf verið að horfa á þetta út frá (Forseti hringir.) viðskiptahagsmunum, hvort hinir hagsmunirnir hafi raunverulega skipt máli á liðnum árum í Hvíta-Rússlandi þegar kemur að kjörræðismanninum.