152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[21:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Ég hef mikinn skilning á því þegar fólk kallar eftir því og spyr: Hvernig má það vera að sendiherra Rússlands sitji hér í höfuðborg landsins og mæti í fjölmiðlaviðtöl og tali með þeim hætti sem hann gerir og við höldum í þessi diplómatísku samskipti við Rússland? Við sjáum núna aukinn þunga hjá nágrannaríkjum sem eru að senda starfsfólk sendiráða heim. Ekkert ríki vina- og bandalagsþjóða hefur slitið stjórnmálasambandi við Rússland. Litháen og að mér skilst Lettland líka hafa sent sendiherrann heim en þó ekki slitið stjórnmálasambandi og önnur ríki hafa verið að senda starfsfólk heim. Hins vegar erum við í þeirri stöðu að vera með örfáa starfsmenn. Bæði er rússneska sendiráðið með örfáa starfsmenn en ég er að vísa til þess að við sjálf erum með örfáa starfsmenn í Moskvu. Það má gera ráð fyrir því að ef við tökum slíka ákvörðun verði svarað í sömu mynt og þá má leiða að því líkur að við verðum í raun með nánast óstarfhæft sendiráð eftir því á hvaða skala slík ákvörðun væri. Þá þarf að vega það og meta vegna þess að við höfum ákveðnum skyldum að gegna gagnvart okkar borgurum, m.a. okkar borgurum í Rússlandi. Ég hef einfaldlega ekkert útilokað í þeim efnum. Það kann vel að vera að það þurfi að vera meiri þungi í þeirri umræðu og ég hef hlustað eftir því og finnst eðlilegt og að mörgu leyti bara gagnlegt og gott að vera spurð reglulega. Við eigum að geta svarað því og verið á tánum þegar kemur að því hvernig þessi mál þróast.

Til að svara seinni spurningu hv. þingmanns þá veit ég til þess að einhver dæmi hafa komið upp, já, þar sem kjörræðismaðurinn hefur aðstoðað borgara þar í landi, þ.e. það sem hv. þingmaður spyr sérstaklega um. Einhver dæmi eru um að það hafi komið til þess að hann hafi sinnt slíkri aðstoð.