fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar. Ég held að það séu nokkrir hlutir sem við þurfum, alla vega í mínum huga, að ræða. Í fyrsta lagi er stóra málið að við náum árangri. Ég skal alveg viðurkenna að mér hefur fundist umræðan þegar kemur að þessum málum, sérstaklega loftslagsmálunum, enn þá vera á þeim stað að við erum að velta fyrir okkur einstaka fjárlagaliðum. Nú er það auðvitað nauðsynlegt en árangurinn verður ekki mældur með því. Það er ekki þannig þegar kemur að því og þessi mál verða gerð upp að við munum segja að fjárlagaliður X hafi hækkað um þetta. Við mælum árangurinn ekki þannig. Þetta verður mælt með því hvort við náum að minnka útblástur og náum þess vegna þeim árangri sem við ætlum að ná í samstarfi við aðrar þjóðir.
Ég er að vonast til þess að við förum að komast á þann stað að við ræðum hlutina út frá þeim forsendum. Við skulum bara horfa á hlutina alveg eins og þeir eru. Við erum með ofsalega metnaðarfull markmið. Við erum með aðgerðaáætlun með einhverjum 50 liðum. Ég er ekki að gera neinar athugasemdir við uppleggið sem þar er, alls ekki, en við erum að byrja í ákveðinni vegferð sem mun taka miklum breytingum. Ef okkur vantar fjármagn, og ég held að það liggi alveg fyrir að við munum aldrei setja nægt fjármagn í þetta, þá þurfum við að bæta í. Hins vegar er náttúrlega stóra málið að við náum árangri í stóra markmiðinu og við þurfum að koma okkur úr því að vera að ræða hlutina og fara í það að framkvæma.