152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[21:57]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Því miður staðfesti hæstv. ráðherra grun minn um að hér væri um lækkun að raunvirði að ræða. Ég skil hvað ráðherrann segir þegar hann talar um árangur og að hann skipti mestu máli þannig að við náum loftslagsmarkmiðum okkar. En mig langar til að benda á, frú forseti, að allir sem ætla að ná árangri í loftslagsmálum, alvörusamdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda, eru að verja stórkostlegum fjármunum í allar þær aðgerðir sem þú þarft að fara í í einu landi til að ná árangri, hvort sem það er í samgöngumálum, í landbúnaði, í raforkuvinnslu eða öðru. Í rauninni er það þannig að öll nýsköpun, öll opinber fjárfesting, ætti að hafa það að meginmarkmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, að meginmarkmiði. Ég er ekkert endilega viss um að við hæstv. ráðherra séum ósammála um þetta en það læðast að mér áhyggjur ef aðgerðaáætlunin sem slík er verkfæri, sem ég hélt að væri svona verkfæri sem stjórnvöld hefðu komið sér saman um að nota, en samt ekki endilega aðalmálið og ekki endilega aðalmálið að verja því fé í framkvæmdir og fjárfestingar sem þarf. Ég geri ekki lítið úr því að það þurfi auðvitað líka fjárfestingar í einkageiranum, að sjálfsögðu þarf þær líka. En það verður alltaf þannig að hið opinbera verður að leiða þetta verkefni. Þannig er það í nágrannalöndum okkar og þannig verður það að vera hér líka. Ég held að með því að tala bara um árangurinn séum við í rauninni að koma okkur hjá umræðunni um þær aðgerðir sem er algerlega nauðsynlegt að ráðast í hér á landi.