152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[22:02]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Raforkuöryggi og raforkumál almennt á Vestfjörðum hafa alltaf verið í nokkurri sérstöðu. Fyrrverandi iðnaðarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, setti á fót starfshóp um mitt ár í fyrra sem hafði það hlutverk að kanna hvaða leiðir væru færar til að þoka málum á sviði orkumála á Vestfjörðum í rétta átt með samstilltu átaki í samræmi við áherslur stjórnvalda um orkustefnu. Starfshópurinn hefur þegar skilað af sér skýrslu sem á að kynna á málþingi um orkumál sem fer fram á Ísafirði á morgun. Nú hefur sú sem hér stendur ekki séð skýrsluna en getur sér þó til um innihald hennar og um stöðu mála í fjórðungnum. Raforkuskortur hefur nær alltaf verið til staðar á Vestfjörðum sem hefur skapað óviðunandi raforkuöryggi. Það vantar tilfinnanlega að framleiða meiri raforku innan fjórðungsins. Meiri raforkuframleiðsla kallar á styrkingu meginflutningskerfis og tvöföldun vesturlínu.

Í skýrslu um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum er gerð grein fyrir orkuþörf þjóðarinnar með vísan til áherslna og markmiða stjórnvalda í loftslagsmálum. Í skýrslunni er einnig farið yfir stöðuna á flutningskerfinu og orkumarkaðinn. Vestfirðingar eiga þó nokkuð inni til að geta staðið jafnfætis öðrum landsfjórðungum í orkumálum, hvað þá heldur þegar snýr að þeim metnaðarfullu markmiðum sem við ætlum að setja okkur í loftslagsmálum. Þá kem ég að spurningu minni til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra — hún er nokkuð stór enda rétt inn í nóttina, þetta er miskunnarlaust hjá mér — hvort við getum séð þess merki í þessari fjármálaáætlun að Vestfirðingar megi vænta þess innan hennar tímamarka að jafna stöðu Vestfirðinga við aðra landshluta þegar kemur að raforkuöryggi.