152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[22:04]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og geri engar athugasemdir við það þó að hv. þingmaður komi hér með grimmar spurningar inn í nóttina. Að öllu gamni slepptu snýr auðvitað allt það sem snýr að þessari fjármálaáætlun að allri þjóðinni. Það sem hv. þingmaður vísar til og er ekkert leyndarmál að við finnum fyrir og höfum heyrt mikið um, ekki bara á Vestfjörðum því að þegar menn skoða stöðuskýrslu, grænbókina, er ákall frá öllum landshlutum um að verða ekki út undan þegar kemur að grænum orkumálum, að fá að taka þátt í grænu byltingunni. Það er auðvitað mikið ákall frá Vestfjörðum en það í sjálfu sér fer inn á miklu fleiri svið en bara það sem snýr að þessum málaflokki. Ég hlakka til, eins og hv. þingmaður, að sjá þær niðurstöður sem koma fram í þeirri skýrslu sem hv. þingmaður vísaði til og fer með flugi í fyrramálið til Ísafjarðar til að ræða þessi mál. Ég tel að það sé mjög skynsamlegt að niðurstöður skýrslunnar séu ræddar með íbúum fjórðungsins á opnum fundum og vænti þess að við munum sömuleiðis ræða þetta hér í þessum sal og líka í hv. þingnefndum. Það sem ég er að vísa til snýr ekki eingöngu að krónum og aurum í þeim málaflokkum sem heyra undir þetta málefnasvið. Þetta er auðvitað stærra og ef við erum að fara í orkuframkvæmdir þá heyrir það ekki beint undir þessi málefnasvið.