fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og óska honum góðrar ferðar vestur. Ég veit að hann verður margs vísari eftir þann dag, þó ekki væri nema hann hafi gaman af ferðinni.
Í fjármálaáætlun er talað um mikilvægi grunnrannsókna á náttúru og auðlindum landsins, vöktun á náttúruvá, náttúru landsins, áhrif landnýtingar og umhverfisþátta ásamt miðlun og hagnýtum rannsóknum. Þá er sennilega hægt að hugsa til mikilvægis náttúrustofa en þær eru átta talsins í öllum landsfjórðungum. Þær sinna rannsóknum á náttúru Íslands og eru sérhæfðar eftir landshlutum. Mikil og góð reynsla er af starfsemi náttúrustofanna og hafa þær sinnt mikilvægum rannsóknarstörfum í nærri 30 ár. Í fjármálaáætlun sem við höfum hér til umfjöllunar er talað um áskoranir eins og loftslagsbreytingar sem geta haft í för með sér miklar breytingar á náttúrufari. Því er brýnt að vakta vel þróun náttúrufars hér á landi og breytingar sem rekja má til umhverfis og mannlegra athafna. Ófullnægjandi vöktunarstig náttúruvár getur aukið líkur á eigna- og manntjóni. Því er mikilvægt að efla vöktunarkerfi vegna náttúruvár og efla rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga. Náttúrustofur um land allt búa yfir miklum mannauði, þekkingu og ekki síst gríðarlegri reynslu í þessum málum.
Því vil ég spyrja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í fyrsta lagi hvort ekki sé rétti tíminn til að efla starfsemi náttúrustofa um landið til að byggja undir þessi markmið sem finna má í fjármálaáætlun, sem hér liggur fyrir til umræðu, og í öðru lagi hvort ekki sé mikilvægt að styrkja samstarf náttúrustofa og stofnana ríkisins í þeim tilgangi að nýta fjármagn til þekkingaröflunar og vöktunar á náttúru landsins sem best.