152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[22:12]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Stutta svarið er já. Hv. þingmaður vísaði hér í sjávarföll og sjávarstrauma sem miðað við þær upplýsingar sem ég hef, þá eru það mjög spennandi valkostir en stutt á veg komnir. En ég held að það séu flestir sammála um að þar séu miklir möguleikar. Vindorkan hefur á örskömmum tíma breyst frá því að vera eitthvað sem við litum ekki á að væri neinn valkostur í það að vera hagkvæmasti valkosturinn þegar kemur að orkunýtingu almennt talað. Og ef ég mætti bæta í upptalninguna þá finnst mér svolítið vanta, sem er kannski bara út af viðhorfi okkar Íslendinga til veðurfarsins hér, að við tölum um sólarorkuna. Við tölum lítið um hana en hún er nýtt víða, líka norðarlega. Það er hægt að nýta hana hér líka. Þetta snýst ekki um að það sé slík sól að maður brenni, þú þarft bara birtu og framþróun í þessum málum hefur verið mikil. Hv. þingmaður vísaði líka í sorphirðuna. Ég held nefnilega að það sem við teljum smátt geti bara verið mjög stórt og reyndar eru þessir hlutir sem hv. þingmaður nefndi ekkert smáir. Umræðan hefur stundum verið sú að við erum að takast á við mjög, alla vega á íslenskan mælikvarða, stóra hluti og erum að deila um þá en við missum kannski sjónar á því sem er nær okkur og gæti verið auðveldara og náðst betri sátt um og gæti verið vænlegur kostur. Hv. þingmaður nefndi hér nokkra og stutta svarið er já. Ég tel þetta afskaplega mikilvægt, hvort sem það er í Vestmannaeyjum eða á öðrum stöðum. Þarna eru líka hlutir sem snúa að því að spara orku eins og varmadælur sem Vestmannaeyingar hafa góða reynslu af. Það er komið frumvarp fyrir þingið frá mér sem miðar að því að geta einfaldað það kerfi (Forseti hringir.) og gert það skilvirkara. Þannig að ég bara fagna orðum hv. þingmanns og er sammála því sem hv. þingmaður lagði upp með.