152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[22:14]
Horfa

Georg Eiður Arnarson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svörin og hvet hann eindregið til að setja svolítinn kraft í málið, ég held að það veiti ekki af. Við erum að urða í Vestmannaeyjum sennilega meiri hlutann af okkar sorpi, sem er náttúrlega alveg skelfilegt. Til framtíðar litið þá er ekkert að gerast í raun og veru. Eftir því sem ég veit best er verið að herða alla löggjöf um þessi sorphirðumál og brennslumál um næstu áramót og maður hefur bara áhyggjur af stöðunni.