fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Árið 2025 er árið sem heimsbyggðin og þar með Ísland þarf að vera búin að toppa losun á koltvísýringi og síðan að minnka hana verulega. 2025 er bara árið sem er á miðju tímabili þessarar fjármálaáætlunar þannig að það er ekki eftir neinu að bíða. Aðgerðir þarf strax. Hér var rætt fyrr í kvöld hvernig aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum talaði ekki nógu mikið inn í þessa fjármálaáætlun. Mig langar að taka þann þráð upp og benda á hvernig loftslagsáherslur í þessari fjármálaáætlun tala ekki heldur nógu mikið við loftslagsáætlanir í fjármálaáætluninni. Það er nefnilega ágætt hérna á málasviði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að þar er sett markmið um 55% samdrátt í nettólosun, á málefnasviði 17. Það eru sett markmið um losun á þremur öðrum stöðum í áætluninni; frá landbúnaði, samgöngum á landi og svo er það svokallað ESD. ESD er sérstaklega áhugavert vegna þess að það er nákvæmlega sama mengi losunar og þessi 55% tala nær yfir. ESD stendur fyrir Effort Sharing Directive, sem er væntanlega samfélagslosunin eða losun á beinni ábyrgð stjórnvalda. Nema hvað, þar á málefnasviði 7, er talað um að losunin fari niður í 2.700 kílótonn af CO2-ígildum fyrir árið 2027. Það er ekki nema 14% samdráttur í losun frá árinu 2005, (Forseti hringir.) viðmiðunarárinu sjálfu. 14% er töluvert minna en þau 55% sem eru sett á málefnasviði loftslagsráðherrans. (Forseti hringir.) Ég vil bara vita: Hvar er samræmingin í þessu skjali? Af hverju er ekki búið að vefa loftslagsmálin inn í allt?