fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans innlegg. Hv. þingmaður er áhugasamur um almenningssamgöngur og ég geri engar athugasemdir við það. Auðvitað er það þannig þegar kemur að orkuskiptunum að þá snýst þetta um það að fara úr jarðefnaeldsneyti yfir í græna orku og þess vegna eru menn að fara úr bensín- og dísilbílunum yfir í græna orku og rafmagn. Það eru jákvæð teikn hins vegar líka þegar kemur að öðrum samgöngumátum eins og innanlandsfluginu og fyrsta rafflugvélin er komin til landsins. Þær fyrstu, miðað við þær heimildir sem ég hef séð, eru að fara 2026 í fjöldaframleiðslu, það er vél sem er 19 sæta sem verður 65–80% ódýrari í rekstri heldur en þær sem nú eru. Ef það gengur eftir þá er það bylting í almenningssamgöngum, fullkomin bylting og myndi þýða að við gætum nýtt þá flugvelli sem við erum ekki að nýta núna sem eru víðs vegar um landið og myndi létta mjög á vegakerfinu og þýddi náttúrlega mjög aukna umferð um Reykjavíkurflugvöll eins og aðra flugvelli. Það verður áhugavert að sjá hvað gerist líka sömuleiðis í skipum. Flaggskip okkar í orkuskiptunum er án nokkurs vafa Herjólfur sem keyrir áfram á rafmagni. Það eru fáir með þær hugmyndir að við munum keyra skip sem sigla mjög langt á rafmagni en hins vegar liggur alveg fyrir að menn telja líklegt að ferjur, sem eru auðvitað almenningssamgöngur, geti keyrt áfram á rafmagni eins og Herjólfur. Þannig að það eru margir spennandi valkostir þegar kemur að þessu en hins vegar er erfitt um þetta að spá vegna þess að sem betur fer er þetta hröð þróun. Það er mjög mikið í gangi. Það er alveg ljóst að það er líklegt að sá sem er með nákvæman spádóm núna um hvernig mál munu þróast (Forseti hringir.) muni hafa nokkuð rangt fyrir sér.