152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[22:30]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég kýs að nálgast þetta svona: Í fyrsta lagi tel ég að sú vinna sem var unnin, það samtal sem var tekið þó að það gæti orðið svolítið erfitt, nýtist og ég lít svo á að þegar kemur að þjóðgarði sé það, eins og nafnið gefur til kynna, garður fyrir þjóðina. Eins og mér sýnist þetta vera núna vantar svolítið upp á það að stór hluti þjóðarinnar sé sannfærður um að garðurinn sé fyrir þann part af þjóðinni sem hann telur sig tilheyra. Það sem ég er að segja er að á þeim fundum sem ég hef haldið í þessu embætti greinir maður tortryggni. Þá er það bara verkefnið að finna leiðir til að ná því markmiði sem lagt er upp með í stjórnarsáttmála að allir geti verið sáttir eða sem allra flestir og við séum að búa til stærri þjóðgarð en við erum með núna.

Við erum með Vatnajökulsþjóðgarð. Við erum með þjóðgarðinn á Þingvöllum. Við erum með þjóðgarðinn á Snæfellsnesi. Við erum með friðlýst svæði sem þekja eftir því sem ég best veit 30% af landinu. Við þurfum að sjá til þess að þetta sé þannig að fólki líði vel með fyrirkomulagið, hvernig sem það verður útfært og líti svo á að það sé partur af því.

Hv. þingmaður vísaði til ágætistækis sem ég fljótt á litið sé ekki neina stóra galla á sem er landsáætlun um innviði. Mér sýnist að menn hafi lagt upp með skynsömum hætti en ég kem betur að því í mínu seinna andsvari.