fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Við deilum alveg þeirri sýn og skoðun að um þjóðgarða sem þjóðin á saman þarf að ríkja sátt og eining. Hins vegar held ég að í stöðu og tilfelli þeirra svæða sem um ræðir akkúrat núna, það er þegar friðlýstra svæða og núverandi þjóðgarða, sé sannarlega komin í einhverjum tilfellum yfir 40 ára reynsla á mikilvægi þessara svæða sem eru, skulum við segja, frátekin fyrir þjóðina alla. Ég geri mér alveg grein fyrir því að ef ráðast á í breytingar, eins og hugmyndir eru um, á lögum til að efla og styrkja vernd þessara svæða og tryggja aðgang að þeim og umgengni þá gæti líka þurft einhvers konar uppbyggingu innviða. Það gætu verið einstakar gestastofur sem eru kostnaðarsamar framkvæmdir og skipta máli, en jafnframt minni innviðir, svo sem salerni og annað því um líkt, sem við vitum að skiptir mjög miklu máli. Í því ljósi treysti ég því að við sjáum þess merki í þessari fjármálaáætlun að gert sé ráð fyrir því.
Annað sem mig langar að nefna örstutt í lokin. Í ljósi allrar umræðu um loftslagsmál, sem er ekki minna mikilvæg í þessu samhengi öllu saman, þá er líka aukin áhersla að verða á mikilvægi verndarsvæða sem ákveðinnar mótvægisaðgerðar við óheillaþróun í loftslagsmálum.
Í annars ágætri fjármálaáætlun um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er talað um að það felist í því tækifæri til að þróa samstarf við landeigendur um verkefni í náttúruvernd á svæðum sem ekki hafa hlotið friðlýsingu eða friðun og teljast sérstök sakir landslags, gróðurfars eða dýralífs. Mig langar í því samhengi að spyrja hæstv. ráðherra: Sér hann í því tækifæri á þeim svæðum á miðhálendi Íslands þar sem ekki endilega verður þjóðgarður því það eru ekki þegar friðlýst svæði? Væri hægt að ráðast í svona samstarfsverkefni einmitt með bændum og öðrum hagaðilum inni á hálendinu til að styrkja náttúruverndina innan miðhálendislínunnar þó ekki sé endilega um friðlýst svæði að ræða?