fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans innlegg og fyrirspurnina. Það er í sjálfu sér auðvelt að taka undir það sem hv. þingmaður segir. Síðan þegar kemur að framkvæmdinni getur það verið aðeins snúnara og reyndar fór hv. þingmaður alveg ágætlega yfir það. Hv. þingmaður vísaði til þess eðlilega að það væri erfitt að verðleggja þessa hluti. Ég held að stóra málið sé að það sem við erum að gera en þurfum að gera meira af er að við erum að breyta hlutum í þá veru að við erum að setja, hvort sem það heita ívilnanir, skattar eða framkvæmdir, við erum að miða að því að gera hér mun loftslagsvænna samfélag, ef þannig má að orði komast. Þetta snýr ekki bara að sköttum og gjöldum. Svo getum við litið á t.d. ívilnanir í sköttum. Hvað er það nákvæmlega? Við erum náttúrlega búin að stórefla og stórauka, og verðum að gera það, þegar kemur að nýsköpun í þjóðfélaginu. Við munum aldrei leysa þennan vanda nema með nýsköpun og tækniframkvæmdum.
Annað líka með hið opinbera. Hvað köllum við það — sem ég vona að við gerum í auknum mæli, við verðum að gera það og það er markmið þegar kemur t.d. að byggingum og fjárfestingum en það getur verið dýrara, alla vega til skamms tíma — hvað köllum við það? Eru það skattar og gjöld þegar við ákveðum að hið opinbera setji þau markmið að allar byggingar séu eins loftslagsvænar og mögulegt er, innkaup eins loftslagsvæn og mögulegt er? Þetta er svolítið auðveldara um að tala en í að komast en samt ekki. Ef allir eru með augun á boltanum — ég veit við hv. þingmaður getum auðveldlega notað slíkar líkingar út af okkar áhugamálum — þá komumst við í mark. (Forseti hringir.) Það er það sem við ætlum að gera og við þurfum að leita allra leiða til þess.