152. löggjafarþing — 63. fundur, 6. apr. 2022.
fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
513. mál
Forseti vill geta þess að í þessum hluta umræðu um fjármálaáætlun voru fjórir ráðherrar til svara í gær og gert er ráð fyrir að í dag verði fimm ráðherrar til svara en hæstv. innviðaráðherra kemur hér sem staðgengill annars vegar menningar- og viðskiptaráðherra og hins vegar mennta- og barnamálaráðherra. Nú er til umfjöllunar málaflokkur menningar- og viðskiptaráðherra og staðgengill ráðherra, hæstv. innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson, tekur til máls.