152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:38]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Sem staðgengill ætla ég að fara yfir helstu málefnasvið og segja að í nýju ráðuneyti menningar, viðskipta og ferðaþjónustu eru einstök tækifæri fólgin. Hátt í 30.000 manns starfa við menningu, skapandi greinar og ferðaþjónustu, málaflokka sem skapa mikil útflutningsverðmæti fyrir þjóðina. Á næstu árum verður lögð áhersla á að auka verðmætasköpun í þessum málaflokkum. Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar og sú fjármálaáætlun sem nú liggur fyrir gefur góð fyrirheit um að umgjörð þessara málaflokka verði studd enn frekar.

Varðandi málefnasvið 18, menningu, verða áfram tryggðar undirstöður íslensks menningar- og listalífs, ný tækifæri sköpuð fyrir íslenska listamenn og skapandi greinar efldar sem atvinnuvegir. Undanfarin ár hafa framlög til menningarmála aukist talsvert og það er fjárfesting sem skilar sér. Helstu áherslur á sviði menningarmála: Stuðningskerfi við framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis verður styrkt, hækka á endurgreiðslur til að stuðla að því að fleiri stór verkefni verði unnin alfarið á Íslandi, enda mikill áhugi á því. Umgjörð tónlistar verður stórbætt með nýrri tónlistarmiðstöð sem tekur til starfa á næsta ári. Þá verða einnig sjóðir á vegum tónlistar efldir, sem styður m.a. tónlistarfólk til markaðssóknar erlendis. Myndlistarstefnu verður hrint í framkvæmd á kjörtímabilinu. Það er tímabært að myndlistin njóti aukins vægis í takt við aðrar listgreinar. Það sama á við um hönnunarstefnu sem verður kynnt og framfylgt á kjörtímabilinu. Þá verður rannsóknasetur skapandi greina sett á laggirnar, sem mun efla umgjörð skapandi greina til framtíðar með tölulegum greiningum og hagvísum. Áfram verður unnið að eflingu safna og varðveislu menningararfs og starfslaun listamanna bætt.

Í fjárlögum 2022 var heildarútgjaldarammi málefnasviðsins 18 milljarðar og 995 milljónir en verður tæpir 18 milljarðar fyrir árið 2027 sem skýrist helst af niðurfellingu á tímabundnum framlögum til ýmissa verkefna, svo sem vegna framlags til framkvæmda vegna náttúruminjasafns og máltækniverkefnisins. Áframhald þess er þó á teikniborðinu en endanlegt kostnaðarmat á eftir að fara fram og birtist þá í næstu fjármálaáætlunum.

Varðandi málefnasvið 14, ferðaþjónustu, er ferðaþjónustan og verður áfram stór þáttur í íslensku atvinnu- og efnahagslífi og mikilvægt að hún fái tækifæri til uppbyggingar eftir áföll heimsfaraldursins. Lögð verður áhersla á að ferðaþjónusta á Íslandi sé samkeppnishæf atvinnugrein í sátt við náttúru, íslenska menningu og tungu. Við viljum að Ísland sé leiðandi í sjálfbærri þróun og nýsköpun í ferðaþjónustu. Áfram verður því unnið að uppbyggingu innviða í takt við fjölgun ferðamanna og samkvæmt leiðarljósi og framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu til 2030. Vonir standa til að ferðaþjónustan sé að rétta úr kútnum eftir þá erfiðleika sem þar hafa verið og rekja má að mestu til kórónuveirunnar. Eru góðar líkur á að ferðaþjónustan muni ná styrkleikum sínum að miklu leyti. Viðræður við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu hafa farið fram af hálfu ráðuneytis og ríkisstjórn upplýst jafnharðan með minnisblöðum um þær horfur. Sterk teikn eru á lofti um að gjaldeyristekjur geti vaxið á komandi misserum.

Í fjárlögum ársins 2022 var útgjaldarammi um 2,2 milljarðar en lækkar niður í 1.969 milljónir fyrir árið 2027. Lækkunin nemur 310 milljónum og skýrist einnig af því að tímabundin framlög falla niður á tímabilinu ásamt árlegri aðhaldskröfu á ríkisaðila.

Varðandi málefnasvið 19, fjölmiðlun, er meginmarkmið stjórnvalda á sviði fjölmiðlunar að stuðla að lýðræðislegri umræðu og lýðræðisþátttöku fólks með því að efla miðlalæsi og auka fjölbreytni í fjölmiðlum, einnig að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að öflugri fjölmiðlun í almannaþágu með virkri þátttöku ólíkra og fjölbreyttra fjölmiðla, einkarekinna sem og Ríkisútvarpsins. Helstu áherslur á árunum 2023–2027 felast í fjölmiðlun í almannaþágu.

Á fjárlögum yfirstandandi árs eru 5,5 milljarðar sem hækka upp í tæplega 6,8 milljarða árið 2027 eða hækkun um 1.200 millj. kr. Hækkunin skýrist aðallega af breytingum á áætlun um tekjur af útvarpsgjaldi. Aðrar breytingar á málefnasviðinu felast í árlegri aðhaldskröfu á ríkisaðila.

Varðandi markaðseftirlit og neytendamál er virk samkeppni, traustur fjármálamarkaður og markviss neytendavernd mikilvæg við að styðja efnahagslega framþróun og arðsemi atvinnulífsins. Helstu áherslur felast í bættri samkeppnishæfni. Stefnt er að því að ná bættri samkeppnishæfni með auknu gegnsæi og skilvirkni með virkri samkeppni og heilbrigðum viðskiptaháttum, (Forseti hringir.) einnig að auka traust með góðri upplýsingagjöf. Fjárframlögin þar eru nokkuð svipuð, hækka um tæplega 600 milljónir á þessu tímabili, sem helgast reyndar af gjaldi vegna Fjármálaeftirlits, en það heyrir undir þetta málefnasvið með fjármálaráðuneytinu.