152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:44]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér eitthvað sem heitir menning og viðskipti og það er auðvitað stórt og víðfeðmt horfandi til næstu fimm ára. Mig langar, virðulegur forseti, að fá aðeins að misnota aðstöðu mína og nefna stöðu viðspyrnustyrkja sem við samþykktum í lok febrúar, ætli það hafi ekki verið 24. febrúar, til handa fyrirtækjum til undirbúnings sumrinu og til að bæta fyrir það tekjufall sem hafði verið alveg frá því í desember. Viðspyrnustyrkir eru auðvitað eitthvað sem við höfum verið með áður og það var auðvelt að fara að borga það af því að forritin voru tilbúin og það var hægt að ganga bara í það að heimila þeim sem á því þurftu að halda að sækja um. En staðan er hins vegar sú að ekki er enn hægt að sækja um. Það er fjöldi fyrirtækja sem bíður og bíður eftir því að fá stuðning sem óskað hefur verið eftir en það bara gerist ekki. Það eru alls konar svör sem berast. Skatturinn segir eitt, efnahags- og viðskiptanefnd segir annað. Það er talað út og suður. Ég nefndi þetta við hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra á fundi með fjárlaganefnd um daginn og hún þóttist koma alveg ofan af fjöllum, að þetta væri ekki komið í gang. Mig langaði að nefna þetta því að hér er hæstv. innviðaráðherra til svara. Það skiptir okkur öll máli að verið sé að styðja við fyrirtækin svo þau geti ráðist í þá ferðaþjónustu sem þau ætla að sinna núna í sumar.