fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að setja þetta hér á borð. Ég skal viðurkenna það, verandi staðgengill ferðaþjónusturáðherrans og menningarráðherrans, að ég kem svolítið af fjöllum, að það skuli vera svona ástatt. Við höfum áður haft mjög góða reynslu af því hvernig þetta hefur gengið fram og Skatturinn hefur séð um þessa þjónustu. Ég veit til þess að á stundum þegar við höfum fengið slíkar kvartanir þá er það vegna þess að einhver gögn vantar og eitthvað er svona og hinsegin. En ég mun bara taka þessa ábendingu hv. þingmanns, koma henni áleiðis til ráðuneytisins og einnig skoða þetta hjá okkur í ríkisstjórninni. Ég tek undir með þingmanninum að það var jú tilgangur þessara viðspyrnustyrkja annars vegar að hjálpa fyrirtækjunum að komast í gegnum þennan erfiða hjalla, lofa þeim stuðningi með öðrum orðum, til þess einmitt að gera þau færari um að takast á við fjölgun ferðamanna sem við sjáum nú þegar að er orðin og væntum mikils af á næstu mánuðum.