fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Þá ætla ég að nefna atriði sem er í fjármálaáætluninni og er undir málaflokknum ferðaþjónusta. Þar er mikið rætt um áskoranir sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir á þessum tímum, talað um fækkun ferðamanna og um spár um fjölda ferðamanna. Það sem ég sakna í þessum tölum er hvað situr eftir í kassanum og hvaða ferðamenn við erum að fá til landsins. Við höfum allt frá því að ferðamannastraumurinn hófst aðallega verið upptekin af fjöldanum sem hingað kemur fremur en hvaða þjónustu ferðamennirnir eru að kaupa. Á bls. 292 í doðrantinum okkar er talað um að í fyrra hafi 686.000 manns komið hingað sem ferðamenn sem er samt aukning upp á 45% á milli ára, frá 2020. Þar er jafnframt talað um þær 2 milljónir sem hingað komu 2019 og talað um að árið 2024 verði ferðamannafjöldinn orðinn sá sami. Eitt af markmiðum sem er að finna á bls. 294 er aukin verðmætasköpun þar sem talað er um að leggja meiri áherslu á arðsemi framar en fjölda. Svo kemur fram að markmiðið sé að útgjöld hvers ferðamanns hækki um 13.000 kr. á haus sem gæti í raun og veru verið lækkun að raunvirði að teknu tilliti til verðbólgu. Hvað þýðir þetta? Þýðir þetta að það kemur meiri peningur í kassann eða ferðaþjónusta sé betur rekin? Ég hræðist að á þeim tíma sem hefur liðið á meðan Covid var yfir okkur höfum við ekki verið að endurhugsa ferðaþjónustuna þannig að byggðirnar og ríkissjóður og ferðaþjónustan njóti sem mest. Erum við að vinna þetta þannig að við séum að fá réttu ferðamennina til landsins?