152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:50]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Þetta er góð spurning sem hv. þingmaður setur hér fram og vangaveltur, og kannski er ekki til neitt einhlítt svar. Þó er það þannig að við erum með í hinni opinberu stefnumörkun, og höfum haft það þannig um allnokkurt skeið, að sækjast ekki endilega eftir massanum af ferðamönnum heldur einmitt þeim sem betur borga eða skilja meira eftir sig eða hvernig sem við eigum að útskýra það. Engu að síður hefur reyndin verið sú að það eru kannski flugfélögin sjálf sem stjórna því hvert sætaframboðið er hér og verð og þar með á einhvern hátt hverjir koma. Hins vegar höfum við séð í þessum faraldri, og af þessum greiningum sem ráðuneytið og Ferðamálastofa og slíkir aðilar hafa staðið fyrir, að staðan er merkilega góð þrátt fyrir allt. Stærstu skuldirnar eru kannski hjá stærstu hótelkeðjunum, þar er massinn, en mörg af þessum minni og meðalstóru fyrirtækjum, sem ég held að við mörg hver hér inni höfum áhyggjur af, standa býsna vel. Einhverjar upplýsingar hef ég um það úr ráðuneytinu að bókanir þeirra séu býsna góðar og ekki síst af hálfu Bandaríkjamanna sem vel að merkja eru þeir ferðamenn sem skila hvað mestu hér, eru aðeins lengur og eru efnaðri og eru kannski akkúrat þeir ferðamenn sem við erum að sækjast eftir. Ég held því að við séum á býsna góðri leið. Við erum með þessa opinberu stefnumörkun, eins og ég sagði áður. En kannski er bara margt annað í umhverfi okkar smátt og smátt að verða til þess, vegna stefnumörkunarinnar að hluta, kannski líka vegna afleiðinga faraldursins, að þróunin er í rétta átt og við að fá hlutfallslega meiri tekjur. Svo eru auðvitað væntingar til þess að fjöldinn verði býsna mikill á þessu ári. Það verður bara að segjast alveg eins og er. Það verður gaman að sjá hvort það gengur eftir.