152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:52]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Menning og viðskipti fara að mínu mati ágætlega saman í einu og sama ráðuneytinu. Vigdís okkar Finnbogadóttir talaði stundum um það í sinni forsetatíð að menningin væri hinn ákjósanlegi fyrsti snertiflötur til að kynnast nýjum væntanlegum viðskiptavinum um allan heim. Viðskiptin eru jú það sem gerir okkur kleift, séu þau blómleg og vel heppnuð, að reka hér velferðarsamfélag sem fullur sómi er að. Við í Flokki fólksins höfum það að forgangsmáli að hér sé nóg fyrir alla, að hér líði engin fátækt, að við skulum ekki líða neina fátækt hér í okkar ríka samfélagi. Við viljum fjölga stoðum atvinnulífsins og tekjuskapandi viðskiptum og viðskiptahugmyndum og tækifærum og við þurfum til þess andrými hér í þinginu. Við þurfum tíma til að veita brautargengi góðum málum.

Þá segi ég við staðgengil hæstv. menningarmálaráðherra að við sem ný erum á þinginu og þið sennilega sem á undan okkur komuð hljótið að upplifa einhvers konar undrun og vonbrigði yfir þeirri ómenningu sem líðst hér á þessu þingi og í þingstörfunum. Það verður að bæta úr því þannig að við komumst úr þeim ógöngum sem þingstörfin virðast hafa verið í um áratugaskeið, einhvers konar ógnarjafnvægi á milli minni hluta og meiri hluta. Ég vil veita meiri hlutanum sem fer með ríkisstjórnarvaldið á hverjum tíma svigrúm til að gera góða hluti í staðinn fyrir að standa hér í eilífum erjum minni hluta og meiri hluta. Við skulum taka á þessu máli og við skulum ræða það til hlítar og einsetja okkur að komast út úr þessari vondu lúppu fyrir lok þessa kjörtímabils og þó fyrr væri.