fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir góð orð. Kannski svolítið um þessa framtíðarsýn sem við eigum að hafa, bæði um einstök málefni en líka um okkur sjálf og það starf sem við sinnum, þá er í þeirri stefnu sem við erum með hér framtíðarsýn um að allir landsmenn eigi að geta aukið lífsgæði sín með þátttöku í öflugu og fjölbreyttu starfi innan málaflokka lista, menningar, íþrótta og æskulýðsmála. Um leið hefur þetta málefnasvið nokkuð sterka samsvörun við velsældarmarkmið ríkisstjórnarinnar. Ég ætla að upplýsa það að við hv. þingmaður höfum á liðnum árum oft talað um mikilvægi þess, að hans frumkvæði, að menningin og viðskiptin og núna ferðaþjónustan komi saman í einu ráðuneyti og við fáum möguleika á að lyfta undir menninguna, gera það sem er hér verið að leggja áherslu á með tónlistarstefnunni og tónlistarmiðstöðinni, rannsóknarsetri skapandi greina og áherslu þess ráðuneytis og núna á þessu kjörtímabili að þessi málaflokkur verður líka atvinnugrein sem skapi tekjur. En auðvitað er pláss fyrir hið listræna og það fer oft mjög vel saman og þegar best gengur held ég að þetta gangi mjög mikið í takt. Ég er sammála hv. þingmanni um að hér sé verið að gera býsna góða hluti. Ég held að við öll í þessum sal getum tekið höndum saman um að ýta undir það og í þessari fjármálaáætlun sé stuðningur við margt af því sem hér hefur verið nefnt.