152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:59]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Mér finnst ræða hv. þingmanns málefnaleg og nauðsynleg og get lofað hv. þingmanni stuðningi mínum við það. Ég er sammála mörgu því sem hv. þingmaður nefnir. Þegar ég er hér að tala um hvernig við ætlum að efla menninguna í samfélaginu þá eigum við líka kannski að horfa inn á við og ég er alla vega tilbúinn til þess. Ég held reyndar að þrátt fyrir allt þá sé mjög góð vinna unnin hér í nefndunum sem skilar sér inn í þingsal í ótrúlega háu hlutfalli af málum þar sem við erum sammála og ekki mikill ágreiningur um vegna þess að við höfum náð niðurstöðu í því starfi. Það geta hins vegar verið önnur mál sem við höndlum ekki nægilega vel og förum í mikinn þrasgír og það er án efa búið að vera viðvarandi verkefni í mjög langan tíma að finna einhverja leið, til að mynda að ná utan um þingsköpin. Ég held að ég sé einn af þeim sem er stuðningsmaður þess. Ég hef prófað að vera báðum megin borðs og nýta kosti og galla þessa kerfis eða ókerfis og ég ætla bara að segja það hér að það mun ekki standa á mér ef við getum fundið betri leiðir. Auðvitað byggist það að einhverju leyti á því, eins og í öðrum þingum, að vilji og vald minni hlutans sé tryggt með einhverjum hætti, hvort sem það er gert með sama hætti og í Danmörku, sem við tökum nú margt frá, eða ekki. En á móti höfum við betri yfirsýn yfir hvernig við ætlum að afgreiða mál. Svo ætla ég að enda á að segja að við erum kannski mjög oft að afgreiða allt of mörg mál og fjalla um allt of mörg mál á hverju þingi og fyrir vikið gerum við stundum mistök (Forseti hringir.) og þurfum þá að endurskoða þau á næsta ári og fyrir vikið verður boltinn alltaf stærri og stærri og málin mörg. Kannski væri betra ef við værum með færri mál og hefðum tíma til að vanda okkur betur.