fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég frábið mér að hæstv. innviðaráðherra sé að koma hingað upp og segja okkur þingmönnum að horfa inn á við og taka undir einhver ummæli um ómenningu hér í þinginu. Það er engin ómenning í þinginu. Nú erum við með þessa fjármálaáætlun fyrir framan okkur og ég á svolítið erfitt með að átta mig á erindi Framsóknarflokksins í þessa ríkisstjórn. Í gær var farið yfir það hvernig hæstv. innviðaráðherra lýsti því yfir fyrir örfáum vikum að framlög yrðu stóraukin til félagslegrar húsnæðisuppbyggingar. Svo er lögð fram áætlun um að lækka stofnframlög og draga úr húsnæðisstuðningi. Síðan fá auðvitað samgöngumálin mjög harða útreið í þessari áætlun. En nú erum við að ræða hér málefnasvið menningar- og viðskiptaráðherra og það er kannski svolítið erfitt að henda reiður á þróuninni sem þar er boðuð vegna þess að málefnasviðið dreifist á marga útgjaldaliði. Við sjáum t.d. að framlög ríkisins til menningar, lista, íþrótta og æskulýðsmála eiga að dragast nokkuð saman á næstu árum sem er þá væntanlega m.a. vegna þeirrar aðhaldskröfu sem verður gerð. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2022 var gerð aðhaldskrafa á alla verkefnasjóði listgreina. Ég myndi gjarnan vilja heyra það frá hæstv. ráðherra hvort gert sé ráð fyrir slíku aðhaldi áfram næstu árin, á þá sjóði sem hafa engan rekstur umfram úthlutanir til verkefna. Svo myndi ég kannski vilja heyra frá honum hvað hann sjái fyrir sér varðandi starfslaun listamanna. Kaupmáttur þeirra hefur dregist aftur úr almennri launaþróun á undanförnum tíu árum og maður spyr sig: Munu ráðherrar Framsóknarflokksins bregðast við þessu og ef svo er á kostnað hvaða verkefna verður það innan málefnasviðsins? Vegna þess að eins og hæstv. ráðherra gerir sér auðvitað grein fyrir er verið að boða alveg gríðarlegt útgjaldaaðhald í þessari áætlun. Þetta er það helsta sem ég myndi vilja heyra frá honum í fyrri umferð.