fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Síðast þegar ég vissi var málfrelsi í þessum ræðustól og hæstv. ráðherra gat vel tekið undir með hv. þingmönnum eða sagt að þeir færu með rangt mál eftir því hvaða skoðanir hann hafði. Ég ætla að halda því áfram þrátt fyrir að hv. þingmaður hafi aðrar skoðanir á því. Mér þykir leitt ef þingmaðurinn komst ekki að í gær en get upplýst hv. þingmann um að á fjárlögum síðastliðin fimm ár, 2018–2022, fóru um 228 milljarðar í samgöngur. Í fjármálaáætlun næstu fimm árin eru 222 milljarðar, sem er sem sagt lækkun um 3%. Það er áskorun sem við þurfum að bæta í. Ég fór ágætlega yfir þetta í svörum mínum í gær í umræðu um húsnæðismálin, ekki síst við hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur sem er samflotsmanneskja hv. þingmanns og ég varð ekki var við annað en að við hefðum alla vega getað skipst á skoðunum þótt við værum ekki endilega sammála um niðurstöðuna. En ég get farið yfir það aftur ef hv. þingmaður óskar þess.
Varðandi þau mál sem hér eru til umfjöllunar er það rétt að það er aðhaldskrafa á alla hluti nema heilbrigðismálin, dómsmálin og menntamálin að hluta og það höfum við haft til langs tíma. Varðandi það að hér sé verið að draga stórkostlega úr útgjöldum þá er það að því leyti rétt að við höfum ekki lengur þá þörf í efnahagslífinu að örva það með því að dæla út fjármunum heldur er komið þensluástand sem við erum í dag að fjármagna með lántökum. Ef við myndum ganga lengra, ég veit að hv. þingmaður er á öndverðri skoðun, myndum við ýta undir þensluna. (Forseti hringir.) Við myndum ýta undir að vextir hækkuðu. Við myndum ýta undir að hér yrði hærri verðbólga. (Forseti hringir.) Við erum því að vinna hér með peningastefnunni en ekki í mjög aðhaldssömum fjárlögum. Við erum nefnilega að vaxa (Forseti hringir.) út úr þessari alheimskreppu á mjög skynsamlegan hátt með ótrúlegum árangri.