152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:06]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra hefur auðvitað fullt málfrelsi á Alþingi en ég segi það aftur að ég frábið mér að hlusta á hann halda ræður yfir þingheimi þar sem hann er að taka undir einhverjar hneykslunarraddir um ómenningu í þinginu. Það hefur enginn hér í þingsal viðhaft rasísk ummæli undanfarna daga eða undanfarnar vikur. Ómenningin liggur allt annars staðar.

Varðandi efni málsins fékk ég engin svör við því þegar ég spurði um listir og menningu. Við erum að ræða það hérna. Varðandi samgöngumálin þá er þetta þannig að Samfylkingin vill ekki fara í þensluhvetjandi fjárlög núna. Það á að sýna aðhald og það er mikilvægt að ríkisfjármálastefnan spili vel með peningastefnunni en það eru ýmsar leiðir til þess. Það er t.d. hægt að afla tekna. Það er hægt að forgangsraða með öðrum hætti. Það er ekkert náttúrulögmál að draga mjög rækilega úr innviðafjárfestingum. Þegar hæstv. iðnaðarráðherra segir að þetta sé ekkert voðalega aðhaldssöm fjármálaáætlun sem hér er birt þá er það bara þannig að það kemur fram á bls. 36 í áætluninni að raunvöxtur samneyslunnar eigi að aukast um 1% á næstu árum. Í sögulegu samhengi og á þessari öld hefur raunvöxtur samneyslunnar á hverju ári verið að meðaltali 2%. Það hefur varla verið svona mikið útgjaldaaðhald síðan ég fæddist. Það er stefna þessarar ríkisstjórnar.