152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:08]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Síðasta setning hv. þingmanns er röng eins og reyndar margt annað sem hann fór með hér úr pontu en ég ætla ekki að elta ólar við hann. Það eru aðrir sem dæma um það en ég og hann. Aðhaldsstefna þessarar ríkisstjórnar er ekki grimm. Við erum að vaxa út úr kreppunni. Við erum að styðja við peningastefnu Seðlabankans og vonandi er að aðilar vinnumarkaðarins verði með á þeim vagni í haust þannig að við getum viðhaldið lágu vaxtastigi. Staðreyndin er sú, þrátt fyrir alls konar yfirlýsingar annarra, að verðbólga, hin samræmda mæling á neysluvísitölu, er 4,4% á Íslandi á meðan hún er 6,2% í Evrópu. Hún er sem sagt lægri hér með krónuna. Þannig að við, hv. þingmaður, erum hér að vinna að því að bæta íslenskt samfélag. Í morgun þegar hv. þingmaður vaknaði hafði hann meiri kaupmátt fyrir hverja einustu krónu, og allir Íslendingar, en í gær og hefur aldrei haft meiri. Árið 2013 voru um 12% sem töldu sig eiga mjög erfitt með að ná endum saman. Í dag eru það 4%.

Hv. þingmaður má koma hingað upp og halda áfram að draga og mála hér svarta mynd af íslensku samfélagi og þeirri þróun sem verið hefur og stefnu síðustu ríkisstjórnar og þeirri fjármálaáætlun og stefnu núverandi ríkisstjórnar líka. En það verður þá að nota tölur sér til stuðnings í því sambandi, eins og ég er að gera hér, vonandi á málefnalegan hátt.