152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:11]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Stofnun nýs ráðuneytis mennta- og barnamála, þar sem saman fara málefni er varða heildarhagsmuni barna og ungmenna, felur í sér rík tækifæri til umbóta með samhæfðum aðgerðum. Ráðuneytinu er ætlað að stuðla að því að menntun, aðbúnaður og réttindi barna séu ávallt í fyrirrúmi og fer ráðuneytið með stjórnarmálefni sem varða fræðslumál, málefni barna og ungmenna, íþrótta- og æskulýðsmál. Ég geri hér grein fyrir megináherslum sem koma fram í fjármálaáætlun 2023–2027 og eru á ábyrgð mennta- og barnamálaráðuneytisins. Undir ráðuneytið heyrir málefnasvið 20 og hluti af málefnasviðum 18, 22 og 29 og er heildarfjárheimild árið 2023 áætluð tæpir 50 milljarðar kr. Í stjórnarsáttmála er mikil áhersla lögð á úrræði og þjónustu fyrir börn og barnafjölskyldur og falla þessar áherslur vel innan markmiða laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sem tók gildi 1. janúar síðastiliðinn og er tímabil fjármálaáætlunar skilgreint sem innleiðingartímabil.

Meðal markmiða með lagasetningunni er að tryggja skilvirkni og snemmtæk úrræði til að mæta þörfum barna og fjölskyldna þeirra með þverfaglegri samvinnu þeirra stofnana sem fara með málefni barna. Áhrif þess að innleiða samþætta stigskipta þjónustu í þágu barna í samræmi við löggjöf um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og snemmtækan stuðning eykur líkur á farsæld barna og velsæld fjölskyldna og samfélagslegum ávinningi til framtíðar.

Alþingi samþykkti í mars 2021 menntastefnu til ársins 2030 sem unnið var að í víðtæku samráði við hagsmunaaðila. Í stefnunni er lögð rík áhersla á að hagsmunir nemenda og þjóðarinnar allrar séu hafðir að leiðarljósi og menntakerfið geti tekist á við breytingar með sveigjanleika og fjölbreytni í starfsháttum. Gert er ráð fyrir að menntastefnan verði innleidd í skrefum og liggur fyrsta aðgerðaáætlunin fyrir. Helstu markmið okkar á framhaldsskólastiginu eru að bjóða upp á nám í takt við þarfir samfélagsins og samhæfa þjónustu fyrir viðkvæma hópa. Þá er lögð áhersla á að fjölga þeim nemendum sem ljúka prófi úr framhaldsskóla á tilskildum tíma, hækka hlutfall nemenda sem ljúka starfs- og tækninámi. Mikilvægt er að aðgangur nemenda að gæðanámi og fullnægjandi stoðþjónustu sé greiður óháð búsetu og að nám sé skipulagt með þeim hætti að það uppfylli kröfur næsta skólastigs.

Meginmarkmið stjórnvalda á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfs er að auka gæði og styrkja faglega umgjörð. Lögð verður áhersla á að jafna möguleika barna til að stunda skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf óháð efnahag, aðstæðum og búsetu og verður hugað að þátttöku barna af erlendum uppruna sem er í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála. Töluverð umræða hefur verið um þjóðarleikvanga. Gagnrýnt hefur verið að í fjármálaáætlun er ekki sýnileg fjármögnun leikvanganna þrátt fyrir að það sé áherslumál í stjórnarsáttmála. Fram hefur komið að verið er að vinna að málinu og skýrist fjármögnun þegar kostnaður við framkvæmdir liggur nánar fyrir.

Virðulegi forseti. Fyrirhuguð er samhæfing á áherslum og markmiðum menntastefnu 2030, markmiðum nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, markmiðum barnvæns Íslands, auk annarra stefna og áætlana á sviði menntunar og velferðar barna og ungmenna. Í því skyni verður m.a. stofnað til samráðsvettvangs hagsmunaaðila um menntun og velferðarmál barna og ungmenna sem hafi það verkefni að styðja við markvissa innleiðingu áherslna og aðgerða.