152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:15]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Áður en ég hef mál mitt þá ætla ég að biðja hæstv. ráðherra um að hlusta vel á það sem ég segi. Við hljótum að gera þá kröfu að fólk sé ekki að rugla saman og blanda saman gerólíkum málum í þessari umræðu. Áðan var ég t.d. að tala um vöxt samneyslunnar. Þá heldur hæstv. ráðherra langa ræðu um kaupmáttaraukningu og segir svo að ég sé að fara með rangt mál. Við skulum reyna að halda okkur við efnið. Ræðum aðeins um málefni barna. Í desember biðu 738 börn eftir greiningu hjá Þroska- og hegðunarstöð. Hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð voru 326 börn á biðlista í desember, börn með mjög alvarlegar þroskaraskanir. Nú eru starfsmenn farnir að flýja stofnunina vegna mygluvanda. Þarna er tekið á móti mjög ungum börnum í íhlutun og þjálfun. Sum þeirra eru með viðkvæm lungu. Þetta er ekki hægt og ég vona að hæstv. innviðaráðherra geti staðfest það við okkur núna bara á eftir að það verði fundið nýtt húsnæði fyrir starfsemina tafarlaust. Á undanförnum árum hefur Barnaverndarstofa lagt markvisst niður meðferðarheimili án þess að önnur úrræði hafi komið í staðinn. Fárveikum börnum er vísað á sveitarfélögin án þess að fjármunir fylgi og ætli Ísland sé ekki eina ríkið á Norðurlöndunum þar sem ekki er rekið langtímameðferðarheimili fyrir börn með alvarlegar geð- og þroskaraskanir.

Það væri hægt að taka ótal dæmi hérna en stóra myndin er þessi: Biðlistar barna hafa lengst og biðtími aukist vegna þess að fjárveitingar, aðstaða og mönnun hafa ekki þróast í takt við raunverulega þörf fyrir þjónustu og það er pólitísk ákvörðun. Þetta er þróun sem verður á vakt hæstv. ráðherra og formanns Framsóknarflokksins. Vill formaður Framsóknarflokksins og hæstv. ráðherra í alvörunni bara hafa þetta svona áfram? Það hlýtur að vera, miðað við þessa fjármálaáætlun sem við erum að ræða í dag þar sem er gert ráð fyrir alveg gríðarlegu útgjaldaaðhaldi næstu árin. Er hæstv. ráðherra ánægður með þetta plagg og þessa fjársveltisstefnu sem hér er boðuð gagnvart málaflokkum hæstv. barnamálaráðherra?