fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég get svarað sumum þeirra en þyrfti að fá andrými eða betri upplýsingar frá ráðuneytinu sem staðgengill til að svara öðru. Við erum ekki sammála um það hvort hér sé rekin gríðarlega aðhaldssöm stefna eður ei og við getum haft ólíka skoðun á því. Að mínu mati er það ekki og það er það sem við erum að leggja upp með í þessari fjármálaáætlun. Þess vegna er það svo að á menntastofnanir er til að mynda lægri aðhaldskrafa en hin almenna eða 0,5%, af því að við erum að tala um þessi mál núna. Ég ætla hins vegar að taka undir með hv. þingmanni að það er ekki ásættanlegt ástand með biðlista og þess vegna lögðum við í aðdraganda síðustu kosninga, og held ég margir flokkar, áherslu á þau mál og eins lögðum við áherslu á það í stjórnarsáttmálanum. Hluti af þeirri uppstokkun sem við vorum að gera á stjórnkerfinu var til þess að geta tekið betur á þessum málum, til að mynda með því að sameina menntamálin, þ.e. leikskóla og grunnskóla með barnamálunum, í því skyni að geta gripið inn í, nýtt okkur það og hjálpa til við að margt af því sem þarf að framkalla með farsældarfrumvarpinu um börn gerist einmitt í leikskólunum og grunnskólunum ef við ætlum að grípa snemma inn í og þess vegna veit ég að það horfir til betri vegar. En ég ætla að taka undir með þingmanninum að við gætum verið á betri stað og eigum að vera á betri stað og ég er sannfærður um að við séum að hefja þá vegferð með þeim verkefnum sem hér eru lögð til og ég fór aðeins yfir í mínu máli.