152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:20]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Við höfum heyrt svona ræður áður um að það þurfi að auka samtal milli stofnana og samþætta og sameina og heildarendurskoðun o.s.frv. og það sé verið að gera ofboðslega góða og mikilvæga hluti en það þurfi að gera enn betur. En um leið fylgjumst við bara með því í rauntíma hvernig t.d. starfsfólk flýr myglað húsnæði, eins og ég fór yfir áðan og fékk engin svör við, hvernig biðlistar lengjast og hvernig fjárheimildir til mikilvægra málaflokka eins og þeirra sem við erum að ræða hérna, t.d. þegar kemur að greiningu barna, lækka jafnvel milli ára. Það er eins og ráðherrar Framsóknarflokksins séu staddir í einhverjum allt öðrum veruleika en við hin þar sem er einhvern veginn bara hægt að kjafta sig endalaust í gegnum hlutina. Það hjálpar ekki börnunum á biðlistunum. Það hjálpar ekki hjúkrunarfræðingunum sem þurfa að hlaupa hraðar og hraðar. Það hjálpar ekki fólkinu á gólfinu. Ég fór hérna yfir áðan hvernig er tekið á móti veikum börnum í mygluðu húsnæði, hvernig kostnaði er velt yfir á sveitarfélögin og hvernig meðferðarheimili eru lögð niður án þess að það komi ný í staðinn. Er þetta í alvörunni stefna Framsóknarflokksins og það sem Framsóknarflokkurinn meinti í kosningabaráttu sinni um XB fyrir börn o.s.frv.? Er hæstv. ráðherra og formaður flokksins stoltur af þessari þróun, lengri og lengri biðlistum og lengri og lengri biðtíma sem hefur orðið í hans ráðherratíð eða í ráðherratíð hæstv. barnamálaráðherra? Hvert er planið? Og hann kjaftar þarna frammi. (Forseti hringir.) Hvernig væri að sýna þingheimi líka smá virðingu?