152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:22]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Þingheimi eða kannski frekar þeim sem horfa á til upplýsingar þá erum við ráðherrar oft með aðstoðarmenn, sérfræðinga úr ráðuneytinu, hér í hliðarsal og þar sem ég er staðgengill í þessum málaflokki þá er ég með sérfræðing á þessu sviði úr viðkomandi ráðuneyti sem ég leita ráða hjá öðru hvoru í hliðarsal. Ég vona að hv. þingmaður hafi skilning á þeim verknaði. Það er ekki óvirðing við þingið. Ég er að reyna að upplýsa þingið eins og best verður á kosið og svara spurningum hv. þingmanns. (Gripið fram í.)

Ef ég heyrði rétt var hv. þingmaður að tala um Ráðgjafar- og greiningarstöðina áðan og þá myglu sem þar hefur komið upp. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður er að meina að það sé hluti af einhverri stefnumörkun. Það er hjá annarri ríkisstofnun að reyna að vinna úr því og skipta um húsnæði og bæta þær aðstæður. Það er auðvitað ekki hægt að fullyrða það hér úr ræðustól án þess að leggja fram tölulegar upplýsingar að allir biðlistar hafi lengst á síðustu árum þegar mér er sagt að svo sé ekki. En aðalmálið er þetta, hv. þingmaður: Hér er verið að leggja af stað og lögð í það mikil vinna á síðasta kjörtímabili, þverpólitísk, bæði innan þings og utan, í að grípa fyrr inn í þau mál sem koma upp á tíma barnsins, svokallaða snemmtæka íhlutun, samþættingu þjónustu í þágu barna þar sem barnið er hjartað í þjónustunni. Hér er verið að taka stór skref í þá átt að innleiða þau lög sem kláruðust á þinginu. Ég er ekki í nokkrum vafa að þegar þetta verður farið að virka þá förum við að sjá mun betri þjónustu við börnin, minnkandi biðlista og markmiðið er auðvitað að eyða þeim þegar um börn er að ræða.