fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða málefni barna. Við vitum að hlutverk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu og ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Þessi mikilvæga stofnun annar ekki eftirspurn og hefur ekki gert það í mörg ár. Mennta- og barnamálaráðherra fór með málefni hennar á síðasta kjörtímabili og eftir ráðherrakapalinn fer hann áfram með málefni hennar þó að hann sé nú kominn í annað ráðuneyti. Þrátt fyrir mikla áherslu mennta- og barnamálaráðherra í barnamálum er bið eftir þjónustu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöðinni langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Ekki er að sjá að hæstv. ráðherra hafi náð að gera úrbætur hvað þetta varðar á síðustu fjórum árum. Eins og kom fram hér áðan var ekki talið að það væri mikil bið en algeng bið eftir greiningu árið 2017 var 10–17 mánuðir. Í dag er algeng bið 11–22 mánuðir. Hér hefur Framsókn, með börn í fyrsta sæti, stjórnað öllu síðustu fjögur árin og samt hafa biðlistar lengst. Hvað er eiginlega í gangi hjá Framsókn? Sjálfur ráðherra þessa málaflokks hefur sagt að það taki þrjú til fimm ár að fara að tikka inn, að eitthvað fari að virka í þessu kerfi. Ég hef enga trú á öðru en að þetta taki fimm til tíu ár vegna þess að þarna var byggt á kviksyndi, ekki klöpp. Það var ekki byrjað á að taka á vandamálum biðlistakerfisins. Það var ekki tekið á vandamálum varðandi mönnun í kerfinu og það er ekki tekið á því vandamáli að fjármagna kerfið. Við vitum og það er staðreynd að ein króna sem lögð er í málefni barna sem þurfa greiningu á ADHD og til að koma í veg fyrir að þau verði öryrkjar í framtíðinni skilar sér tífalt til baka. Ég spyr því: Hvers vegna í ósköpunum brettum við ekki upp ermarnar og tökum á þessu núna? Látum það ekki dankast næstu þrjú til fimm árin.