fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að það er ómögulegt að við þurfum að bíða í fimm eða tíu ár. Ég hef þá trú að þegar ráðherrann lýsir því að innleiðingin taki nokkur ár, að hún fái fulla virkni, þá sé það einfaldlega, eigum við að segja raunverulegt mat á því hvernig hlutirnir gerast gjarnan í þessum geira. Það eru 1,8 milljarðar sem eru að koma inn í þessi mál vegna farsældarlaganna um samþættingu á þjónustu við börn. 1,1 milljarður fer inn í jöfnunarsjóð til allra sveitarfélaga og svo hefur ráðuneytið úr 700 milljörðum að spila. Breytingin er því í raun og veru fullfjármögnuð. Hún mun að sjálfsögðu strax hafa einhver áhrif á þá stöðu sem uppi er núna. Vonandi er meiningin að um leið og þú getur farið að grípa fyrr inn í þá fer að fækka inn á biðlistann og þú getur farið að vinna hann í hina áttina. Það er auðvitað mjög vond staða ef stöðugt bætist í á öðrum endanum og vinnst hægt ofan af. Þá lengist biðlistinn. Ég hef trú á þessu verkefni og trú mín byggist á því að mjög stór hópur fólks, sérfræðingar á landinu öllu, kom saman til að útbúa þetta kerfi. Ráðherrann sem hefur lagt líf sitt og sál í þetta og mikla ástríðu fær líka tækifæri, eins og hv. þingmaður benti á, til að innleiða málið og getur þar af leiðandi fylgt því eftir. Ég hef bara þá trú að okkur takist þetta en er sammála þingmanninum að það má ekki dragast úr hömlu.