fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Jú, von og trú. Vonandi gengur það upp en því miður, sporin hræða. Ísland mælist ítrekað langt undir nágrannaþjóðum í PISA-könnunum. Þriðjungur ungra drengja getur ekki lesið sér til gagns að lokinni grunnskólagöngu. Öll áhersla virðist vera lögð á lestrarhraðamælingar en á sama tíma fer lesskilningur barna dvínandi. Margir hafa bent á að þörf sé á að breyta áherslum í lestrarkennslu og leggja áherslu á að börn nái að brjóta lestrarkóðann í stað þess að kenna þeim bara að lesa hratt. Mjög áhugavert verkefni fór af stað í Vestmannaeyjum síðasta haust. Verkefnið heitir Kveikjum neistann. Með því er innleidd ný nálgun í lestrarkennslu og er nú farið eftir þeirri nálgun í 1. bekk í grunnskóla Vestmannaeyja. Áhersla er lögð á að einfalda lestrarlíkanið og samkvæmt því skiptir öllu að lestur byggist upp á umskráningu og málskilningi en ekki hraða. Markmið verkefnisins er að 80–90% barna séu fulllæs eftir 2. bekk. Fyrstu tölur gefa til kynna góðan árangur en samkvæmt þeim höfðu 93,6% barna í 1. bekk brotið lestrarkóðann strax í janúar og 78% gátu lesið setningar með stórum bókstöfum. Er ráðherra sammála mér um að við þurfum að efla lestrarkennslu barna og leggja meiri áherslu á lesskilning og að brjóta lestrarkóðann í stað þess að mæla bara hversu hratt börn geta lesið? Í þessu tilfelli erum við sérstaklega að tala um vandamál drengja. Er ekki ráðherra sammála mér um að löngu tímabært sé að taka á þessum vanda og koma hlutunum í lag? Eins og kerfið er í dag virðist það ekki virka. Þarna virðist vera komið tækifæri til að láta eitthvað virka.