fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Jú, ég er sammála hv. þingmanni. Það er greinilega margt á liðnum árum — þrátt fyrir að menn hafi verið að leggja fram alls konar nýjar hugmyndir og plön, og þá er ég að horfa langt aftur, á læsisátök og alls konar hluti, þá höfum við því miður séð þróunina í þessum samanburðarprófum, PISA og öðrum, sem hafa ekki stutt að við séum á réttri leið. Og það þrátt fyrir að við séum að setja kannski meira fjármagn til grunnskólans en mörg af samanburðarlöndum okkar. Þess vegna held ég að þáverandi menntamálaráðherra hafi á síðasta kjörtímabili unnið gríðarlega góða vinnu með menntastefnunni sem var unnin svolítið eins og barnamálin, margir komu að og var skýrt plagg sem var samþykkt hér í þinginu. Í þessari fjármálaáætlun erum við að setja um 900 milljónir af stað í að innleiða þá stefnu, m.a. að bæta læsið. Hv. þingmaður minntist hér á mjög gott og spennandi verkefni í Vestmannaeyjum. Ég hef líka séð að fræðslusviðið í Reykjanesbæ er búið að búa til sína menntastefnu til 2030 á grunni hinnar almennu ríkismenntastefnu. Ég held að þarna séum við komin með tæki sem við getum horft á að muni hjálpa okkur að fara rétta leið, á sama tíma og við vorum áðan að tala um hvernig við ættum að grípa utan um þau börn sem þurfa á viðbótaraðstoð að halda í gegnum samþættingu á þjónustu við börn. Þannig að ég er sannfærður um að þessi fjármálaáætlun ýtir undir að við séum á réttri leið og að við munum sjá mælanlegan árangur á augljósum hlutum eins og lesskilningi og öðru.