152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:33]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Áður en ég kem mér að efninu langar mig, úr því að því var hafnað af hæstv. forseta að leyfa hér umræðu um fundarstjórn forseta, að koma því á framfæri að mér finnst það ekki réttur úrskurður hjá forseta. Það hlýtur að vera hægt að fara í fundarstjórn forseta ef þingmenn vilja á milli ráðherra. Hæstv. iðnviðaráðherra hefur talað hér fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðherra og barnamálaráðherra og þar á milli hefði átt að vera svigrúm fyrir fundarstjórn forseta, hefði mér fundist, eða þá fyrir hv. þm. Jóhann Pál Jóhannsson til að fá að bera af sér sakir. Það er úrræði sem er sparlega notað af þingmönnum hér í þingsal og mér finnst að leiðarljósið fyrir forseta í því ætti þá að vera að hafa sviðið svolítið rúmt þegar það er metið. Ég vildi bara koma þessu á framfæri hér úr því að ekki fékkst leyfi til þess fyrir hv. þm. Jóhann Pál Jóhannsson að fara í fundarstjórn forseta eins og mér finnst að hann hefði átt að fá.

En þá að efninu. Það er búið að tala svolítið mikið um biðlista barna hér og ég ætla að halda því áfram og þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað og taka þátt í umræðunni. Sumu hefur hann svarað ágætlega og öðru síður, eins og gengur. Það mat er auðvitað bara hjá okkur öllum. Mig langar kannski aðeins að fara í heildarmyndina í þessu. Þegar við erum að tala um biðlista barna þá hefur flokkur hæstv. ráðherra talað mikið um hagsmuni barna og talar mikið um sig sem flokk barna og að mikið hafi gerst í málefnum barna á þeim tíma sem hann hefur verið við völd. Samt hafa biðlistar, margir hverjir, rétt eins og ítrekað hefur komið fram hjá Umboðsmanni barna, verið að lengjast. Framsóknarflokkurinn hefur nánast óslitið verið í stjórn frá 2013 og á sama hátt og hæstv. ráðherra var að þakka sér og sínu fólki fyrir það hve Ísland stæði vel efnahagslega hlýtur hann að þurfa að kannast við ábyrgð sína í því þegar biðlistar barna eru langir og eru að lengjast á sama tíma og flokkur hæstv. ráðherra og einstaka ráðherrar og þingmenn flokksins tala mjög mikið um að hér sé hreinræktaður flokkur á ferð sem hafi gert mikið í þeim málaflokki. Tölurnar á biðlistunum sýna okkur annað. Ég ætlaði vinsamlegast að biðja hæstv. ráðherra um að fara yfir þessa mynd.