fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Já, ég hef svo sem kallað eftir því, er ekki með nægilega þekkingu á því sjálfur, að fá að sjá þróun biðlista á síðustu árum. Ég ætlaði að taka undir það með hv. þingmanni að þegar til eru biðlistar sem á eru börn, hvar svo sem þeir eru, þá er það verkefni okkar að reyna að vinna bug á því. Þegar við erum með þá hugsun að grípa snemma inn í eru biðlistar andstaðan við það, þ.e. þegar fólk bíður eftir því að fá viðtal, greiningu og síðan meðferð eftir atvikum. Ég verð bara að viðurkenna að ég hef ekki þær tölur á takteinum og get þess vegna hvorki staðhæft að sú þróun sem hv. þingmaður fullyrðir að sé á öllum sviðum sé rétt eða röng. En samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fæ hér úr hliðarherbergi heyri ég að það sé ekki svo að allir biðlistar hafi lengst á þessum tíma. Ég held að það sé hins vegar engum blöðum um það að fletta að Framsóknarflokkurinn og hæstv. ráðherra Ásmundur Einar Daðason hefur lagt sig í líma við að leggja áherslu á börn og umræðan og staðreyndin um hvernig unnið var að þeim málum á síðasta kjörtímabili sannar mitt mál. Haldnir voru mjög stórir fundir með öllum sem vildu taka þátt og voru biðlistar á 500 manna samkomur í Hörpu en Covid kom í veg fyrir að allir gætu mætt. Mjög stór hópur, faglega og pólitískt, kom að þessum samningum og ég held að við séum á réttri leið hvað það varðar. Það er rétt að félagsmálaráðuneytið eða barnamálin hafa verið í höndum okkar Framsóknarmanna allt frá árinu 2013, nema um átta mánaða skeið þegar hæstv. ráðherra úr flokki hv. þingmanns var með þau mál á sinni hendi. Ég býst við að það sé eins um hans tíma, að hann hafi lagt sig fram um að reyna að stytta biðlista barna. Við erum því miður ekki komin lengra en raun ber vitni og þurfum að gera betur. Ég held að við séum á réttri leið, bæði með fjármálaáætluninni og þeim lögum sem við erum búin að samþykkja.