fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vil taka það skýrt fram hér að ég efast ekki eina mínútu um að við séum öll af vilja gerð. Ég efast ekki um það eina mínútu að hæstv. barnamálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins og hæstv. innviðaráðherra séu með hjartað á réttum stað þegar kemur að málefnum barna. Öll viljum við auðvitað að sá hópur hafi það gott og þurfi ekki að vera lengi á biðlistum. En ég var kannski aðeins að reyna að velta því fyrir mér, einmitt út af því að flokkurinn hefur verið í aðstöðu svo lengi til að bæta úr þessu, hvort hann vilji ekki kannast við ábyrgð sína í því að þó hann sé með hjartað á réttum stað, fullur af góðum áformum og vilja, sem ég dreg ekkert úr og tek alveg undir, þá hafi verkin kannski ekki alveg skilað þeim árangri sem talað hefur verið um. Ég myndi kannski líka vilja dvelja aðeins við á svipuðum slóðum því að stundum er verið að tala um að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Vissulega var fæðingarorlofið lengt um þrjá mánuði nýlega og það hjálpar en hins vegar liggur fyrir að mikil fjárfestingarþörf blasir við sveitarfélögunum í uppbyggingu innviða og þá erum við ekki bara að tala um leikskóla heldur líka á fleiri sviðum sem ég veit að hæstv. ráðherra þekkir mætavel. Forsætisráðherra sagði nýverið að skoða ætti gjaldfrjálsan leikskóla og það er þá hugmynd sem er komin út í kosmósið. Auðvitað er sú hugmynd ekki bara ættuð þaðan, það hafa fleiri verið að kalla eftir því. En þetta kostar peninga og það liggur ekkert fyrir um það hvernig hugmyndir hæstv. forsætisráðherra eiga að vera fjármagnaðar eða hvar breiðari línan í því liggur hjá ríkisstjórninni sjálfri. Ég ætlaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hefði hugmynd um hvernig það yrði gert vegna þess að sveitarfélögin hafa verið að kalla eftir meira fjármagni og þau þurfa svo sannarlega á því að halda ef það verkefni á að verða að veruleika. Það er kannski mín spurning til hæstv. ráðherra að þessu sinni.