152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[16:21]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar leggur áherslu á efnahagslegar og félagslegar framfarir, vernd umhverfis, jafnrétti og jafnvægi byggða og kynslóða. Til að hægt sé að ná metnaðarfullum markmiðum þarf að tryggja kraftmikla verðmætasköpun í öllu landinu. Styrk skref í þá átt eru stigin í þeirri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú er rædd þar sem áherslur stjórnarsáttmála á nýsköpun og tæknibreytingar koma skýrt fram og er fylgt skýrlega eftir. Á tímabili áætlunarinnar er árleg fjárfesting í nýsköpun og hugviti aukin um 9,2 milljarða kr. Er þar með lagður frekari grunnur að hugviti sem grunnstoð íslensks efnahagslífs sem styður okkur til að takast á við framtíðaráskoranir og frekari lífskjarasókn. Kemur þessi aukning í beinu framhaldi af áherslum og viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við heimsfaraldri Covid-19 sem sýndi fram á mikilvægi þess að efnahagslífið byggi í vaxandi mæli á auðlindum sem hvorki eru takmarkaðar né að miklu leyti háðar utanaðkomandi aðstæðum og sveiflum. Mikilvægt er að virkja þann slagkraft sem myndast hefur á sviði vísinda og nýsköpunar í kjölfar aðgerða stjórnvalda við heimsfaraldrinum. Þá er lögð til varanleg aukning í Rannsóknasjóð sem nemur 1,1 milljarði árlega í þeim tilgangi að styðja frekar við vísindarannsóknir sem og sama upphæð í árlega aukningu til Tækniþróunarsjóðs og efldar þar með áfram rannsóknir og þróunarstarf sem miðar að nýsköpun í atvinnulífinu. Með þessu vill ríkisstjórnin m.a. stuðla að vísindastarfi á heimsmælikvarða, gera hugvit að stærstu útflutningsgrein þjóðarinnar í fyllingu tímans og fjölga störfum í þekkingargeira um allt land. Um leið og við styrkjum nýsköpun viljum við tryggja að við gerum hlutina eins vel og mögulegt er. Þess vegna hefur verið ákveðið að ráðast í endurskoðun á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir með það að leiðarljósi að einfalda umgjörð starfseminnar og skýra ábyrgð. Þá er einnig áformað að leita eftir samstarfi við OECD um úttekt á framkvæmd og áhrifum skattfrádráttar til fyrirtækja.

Virðulegur forseti. Samkeppnishæfar rannsóknir og háskólar eru grundvöllur þeirrar verðmætasköpunar sem við stefnum að. Það er því mikilvægt að styðja vel við öfluga háskóla í landinu öllu og tryggja gæði vísindastarfs og að þaðan útskrifist einstaklingar sem fá störf við hæfi í íslensku samfélagi og geta skapað sér áhugaverð tækifæri sem byggja á þekkingu, hugviti og nýsköpun. Hækkun á fjárframlögum til háskólastigsins aukast um 5 milljarða frá síðustu fjármálaáætlun. Forgangsverkefnin eru í upphafi kjörtímabils að endurskoða skipulag og reglur um fjárveitingu háskólanna og efla gæði náms háskóla og tryggja að þeir verði betur í stakk búnir til að sinna því mikilvæga hlutverki sem þeir hafa á tímum tæknibreytinga. Ríkisstjórnin vill stefna að öflugu rannsóknarumhverfi og viðhalda sterkum tengslum háskóla við samfélag og atvinnulíf. Með því náum við fram þeim áherslum sem fram koma í stjórnarsáttmála í mennta- og vísindamálum, bættri upplýsingamiðlun og stafrænni umbyltingu. Þá verður lögð áhersla á fjölbreytt námsframboð í fjar- og dreifnámi. Fjarskipti og stafrænar lausnir eru undirstaða hvers konar framfara í nútímaþjóðfélagi. Traustir, áreiðanlegir og öryggir tæknilegir innviðir auk stafrænna lausna og nútímalegs regluverks eru forsenda þess að hægt sé að fullnýta möguleika til hugvitsdrifnar verðmætasköpunar hér á landi og auka fjölbreytileika atvinnulífsins í landinu öllu.

Ríkisstjórnin leggur sérstaklega áherslu á netöryggismál og í því samhengi er gert ráð fyrir tæplega 150 millj. kr. varanlegri aukningu.

Jafnréttismál eru og verða áfram forgangsmál ríkisstjórnarinnar. Tækifæri eru til að auka jafnrétti á öllum þeim málefnasviðum sem undir mitt ráðuneyti heyra. Hlutur kvenna í fjármagni sem veitt er til vísinda og nýsköpunar, hvort sem litið er til hæstu styrkja eða endurgreiðslna vegna rannsókna og þróunar, er of lítill miðað við karla. Konur skilgreina sig síður sem frumkvöðla og eru tækifæri til að auka fjölbreytni hvað varðar atvinnugreinar og þarfir sem styrkjaumhverfið tekur til. Það er líka nauðsynlegt að líta til mismunandi stöðu kynjanna innan háskólasamfélagsins en þar eru konur í miklum meiri hluta nema, þ.e. 65% á móti 35% karla. Konur hafa sem betur fer í auknum mæli sótt í vísinda- og tæknigreinar en karlar síður sótt í nám sem snýr að hefðbundnum kvennastörfum. Þörf er á því að draga úr þessum kynjamun þar sem það skiptir miklu máli að framtíðarvinnustaðir endurspegli samsetningu og fjölbreytileika samfélagsins.

Að lokum má nefna að öflug og örugg fjarskiptaþjónusta getur stuðlað að aukinni fjölbreytni í störfum óháð staðsetningu (Forseti hringir.) og aukið möguleika á sveigjanleika til vinnu. Í því samhengi má greina að bættar nettengingar auka byggðafestu kvenna umfram karla í dreifbýli.

Það er sönn ánægja að kynna þau málefnasvið og málaflokka sem undir mitt ráðuneyti heyra (Forseti hringir.) í þessari fjármálaáætlun. Það er mikil sókn og ég mun stöðugt horfa til þess hvernig gera má hlutina betur, nýta tækifærin, virkja þau og ryðja braut (Forseti hringir.) nýsköpunar og iðnaðar á flestum sviðum samfélagsins.