fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta er mjög mikilvæg umræða. Já, ég hef rosalega mikla trú á því að háskólarnir geti nýtt fjármagnið betur með endurskoðun á reglum um fjárveitingar til þeirra, að við getum náð fram þeim skýru markmiðum sem við setjum okkur í þessari öflugu fjármálaáætlun. Þetta snýst ekki bara um fjármagnið heldur hvernig það er notað, hvaða hvata við höfum í kerfinu og hvernig við deilum fjármunum til háskólanna til að ná fram þeim árangri sem við ætlum okkur að ná. Við eigum rosalega góða háskóla og öflugt rannsóknastarf og það er öflugur frumkvöðlaandi í íslensku samfélagi. En við þurfum hvata til að tengja þetta betur, að auka framboð á samfélagslega mikilvægum námsbrautum, t.d. í verk- og tæknimenntun og raunvísindum, að háskólarnir séu í stakk búnir til að undirbúa nægilegan fjölda fólks til starfa í samfélagslega mikilvægum greinum þar sem þörf er á fólki. Það er þörf á vel menntuðu fólki, þar eru gríðarlega mörg tækifæri. Nú hafa hvatarnir í fjármögnun háskólanna einfaldlega verið rangir, þeir snúast frekar um fjölda en annað. Við erum að reyna að bera okkur saman við önnur lönd. Við ætlum að ná ákveðnu markmiði við fjármögnun háskóla en þá þurfum við líka að horfa á það hvernig við notum þá peninga, þá tugi milljarða, sem eru í háskólakerfinu og hvort við getum ekki forgangsraðað þeim betur, búið til góða hvata til að ná fram árangri, hvort sem það snýr að menntun í samfélagslegum greinum, að því að stuðla að auknu fjarnámi, auknu samstarfi háskólanna, minni yfirbyggingu, og ég gæti lengi áfram talið.