152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[16:33]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Naglasúpan getur verið ljúffeng. En þetta snýst ekki bara um að hagræða, sem Samfylkingin kann kannski illa á, heldur að auka skilvirknina, að nýta fjármunina betur. Þetta snýst ekki bara um að hagræða eða hætta að gera eitthvað heldur að forgangsraða og gera miklu betur. Við höfum ekki fallið frá því markmiði að ná fjármögnun Norðurlandanna, því sem þau leggja í þessi mál, en við getum ekki borið saman epli og appelsínur. Nú stendur sú vinna yfir í Vísinda- og tækniráði að bera saman skólakerfi landanna, hvernig við getum borið það saman. Það er einfalt að slengja því þannig fram að við getum bara fækkað nemendum um ákveðið hlutfall og þá erum við allt í einu komin með gríðarlega góða fjármögnun fyrir hvern nemanda, ef þetta snýst bara um upphæð fjármuna á hvern nemanda. Við þurfum þá að breyta fjármögnunarlíkaninu þannig að við styðjum miklu betur við hvern nemanda og að við setjum hvata og gæði náms inn í það og útskriftarárangur, og að við ætlum okkur að ná sambærilegum árangri og löndin í kringum okkur í minna brottfalli, í því að halda gæðum náms frá fyrsta ári til hins síðasta, að ná að útskrifa nemendur úr þeim greinum sem hv. þingmaður nefnir. Það er talað um list- og heilbrigðisgreinar í fjármálaáætluninni. Það er sérstaklega talað um þær sem samfélagslega mikilvægar námsbrautir. Mér þykir leitt að það hafi farið fram hjá hv. þingmanni. En á bls. 346 í áætluninni er talið upp að heilbrigðisþjónusta og listnám séu mikilvægar, samfélagslegar námsbrautir og að við verðum að breyta reglum og fara í aðrar sértækar aðgerðir á þessu kjörtímabili til að fjölga nemendum í þessum mikilvægu greinum.