fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og vonandi gengur það upp að koma í veg fyrir göt í kerfinu, bæði í óbyggðum og á vegum landsins. Vonandi verður ekki vandamál að fjármagna það í framtíðinni. En víkjum aftur að fjarskiptamálunum og þá kannski af öðru tagi.
Í fjármálaáætlun 2023–2027 segir:
„Brýnt er að styrkja varnir innviða á Íslandi á áætlunartímanum. Meðal þess sem huga þarf vandlega að eru verkefni sem lúta að auknu öryggi neðansjávarkapla sem tengja Ísland við Evrópu og Norður-Ameríku.“
Undir þetta má taka enda hefur rússneski herinn fært sig upp á skaftið síðustu ár og með innrás Rússa í Úkraínu má vænta frekari stigmögnunar í Norður-Atlantshafi á næstu árum. Vert er að minnast á að í upphafi árs urðu skemmdir á ljósleiðara við Svalbarða og talið er að það hafi verið af manna völdum. Það er hræðileg tilhugsun hve auðvelt það er fyrir óvinveittar þjóðir að eyðileggja okkar helstu tengingar við umheiminn, neðansjávarljósleiðarana.
Ég spyr því hæstv. ráðherra: Til hvaða aðgerða getum við gripið á næstu árum til að tryggja betur öryggi neðansjávarkapla sem tengja Ísland við umheiminn? Hvernig hugsar ráðherra sér að gera það og hvernig á að fjármagna það? Getum við virkilega, í þessum viðsjárverða heimi, eins og komið hefur í ljós, þar sem stríð er hafið í Evrópu, tryggt að við séum nokkuð örugg um að ljósleiðarar skemmist ekki þannig að við verðum ekki tengd við umheiminn?