152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[16:51]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Þetta eru réttmætar áhyggjur hjá hv. þingmanni. Örugg og góð fjarskipti við útlönd verða sífellt umfangsmeiri og mikilvægari fyrir samfélagið allt. Við höfum sem eyja í Atlantshafi mikla sérstöðu. Tengingarnar eru kostnaðarsamar og byggjast nær alfarið á þessum fjarskiptastrengjum. Það er auðvitað erfitt að segja hvernig við tryggjum okkur gegn skemmdarverkum af manna völdum annað en það að vera mjög meðvituð um öryggi á því sviði. Við erum með varnir eins og Landhelgisgæsluna sem hefur ákveðið hlutverk á sjó. Við höfum þar tvö góð og sterk varðskip. Fjarskiptastofa er mjög meðvituð um allar ógnir og gerir líka áhættumat. Ef einhver strengur rofnar, ef allir strengir rofna — hvað á til bragðs að taka, hver er staða okkar, hverjir eru möguleikar gervihnatta o.s.frv.? Fjarskiptastofa vinnur statt og stöðugt að því að tryggja umhverfið, að tryggja viðbrögð við hverju því sem getur komið upp, hvort sem það er af manna völdum eða vegna umhverfisógna eða annars sem við sjáum ekki beinlínis fyrir.

Það er líka mjög mikilvægt að við erum að vinna að lagningu þriðja fjarskiptastrengsins, sem ég verð að fá að nefna, sem mun liggja á milli Íslands og Írlands. Stefnt er að því að taka hann í gagnið undir lok þessa árs eða í byrjun þess næsta. Það skiptir líka miklu máli upp á öryggið að hér séu ekki veikir strengir, hér séu nýir strengir, hér séu strengir sem geta tekið við af öðrum ef eitthvað kemur fyrir. Þessar ógnir eru raunverulegar og við þurfum að taka þeim alvarlega. Það skiptir því máli að fara yfir mikilvæga innviði, viðbrögð við ógnum, hver staðan er og hvað við tökum til bragðs ef eitthvað kemur upp.