fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Eins og hv. þingmaður nefndi höfum við farið í stórsókn. Við höfum gjörbreytt umhverfi nýsköpunar á Íslandi og við gerðum það á meðan heimsfaraldur geisaði. Það sannaði sig að þessi útflutningsgrein stóð með okkur þegar aðrar greinar gerðu það ekki vegna utanaðkomandi aðstæðna sem við réðum ekki við. Það er svo gaman að sjá alla virknina, hvar sem hún er, t.d. á Siglufirði í síðustu viku þar sem nýttur var styrkur úr Lóu, sem er sérstaklega fyrir landsbyggðina, til að tengja saman unga frumkvöðla á Norðurlandi og fjárfesta af öllu landinu, til að kynna hugmyndir og skapa tækifæri og vonandi fleiri störf víða um land. Og af því að hv. þingmaður spyr hvort ég telji nóg að gert ætla ég að segja: Já, hér er langbest gert. Hér er verið að segja: Við fórum í þessar mótvægisaðgerðir í Covid og við ætlum að halda þeim áfram. Þær falla ekki niður og það er ansi skýr forgangsröðun hjá ríkisstjórninni, sem glímir við mikla áskorun í þessari fjármálaáætlun, að reyna að ráða við stöðuna, koma stöðunni aftur í sambærilegt horf og hún var fyrir heimsfaraldur til lengri tíma, að forgangsraða, að nýta fé betur en standa á sama tíma undir atvinnutækifærum, útflutningstekjum o.s.frv. Ég er gríðarlega glöð með þetta. Á sama tíma held ég að við getum nýtt fjármunina enn betur í kerfinu. Þess vegna held ég að úttekt á endurgreiðslu til rannsókna og þróunar frá OECD muni skipta máli en við þurfum líka að átta okkur á vaxtaumhverfinu. Hvar eru peningarnir? Hvar þarf hið opinbera að koma inn? Hvar þarf hið opinbera kannski að stíga til baka og segja: Heyrðu, nú hefur markaðurinn leyst þetta, nú getum við haldið að okkur höndum hér en stuðninginn vantar á annan stað? En við getum líka beint sjónum okkar að samfélagslegum áskorunum, hvort sem það er í loftslagsmálum eða sjálfbærni eða öðru, til þess að ýta undir hugvit og laða til okkar framúrskarandi fyrirtæki til lengri tíma.