fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Við nefnum það aðeins í fjármálaáætluninni að hlutfall kvenna á meðal frumkvöðla er lágt á Íslandi. Þegar litið er til endurgreiðslu til rannsókna og þróunar eru karlar um 75% umsækjenda. Mikilvægt skref var stigið í síðustu viku þegar Gagnatorg Rannís opnaði. Þar eru öll gögn sýnileg, hvert hinir opinberu fjármunir eru að fara, hvort þeir fara til kvenna eða karla, til hvaða landshluta og annað. Þessi sýnileiki er mikilvægur þegar við tölum um stuðning við nýsköpun og opinbert fé. Við þurfum að kortleggja kynjasjónarmið í nýsköpunargeiranum betur. Við höfum verið að hlaupa mikið, það hefur verið mikil innspýting inn í kerfið en við þurfum að skoða þetta til lengri tíma. Það eru samt líka góðar fréttir en við höfum ekki allar tölurnar fyrir framan okkur og þær sem við þó höfum eru ekki nægilega nákvæmar. En ef við skoðum bara Kríu sem var stofnuð á síðasta kjörtímabili, sem fjárfestir í sjóðum og þar sem verið er að stýra fjármagni, var fjárfest í þremur sjóðum síðast. Einum sjóði er stýrt eingöngu af konum, öðrum sjóði er stýrt til helminga af konum og til helminga af körlum og þriðja sjóðnum er stýrt að tveimur þriðja af konum. Það eru því líka einhverjar bjartar fréttir í þessu. En þetta þurfum við að taka saman. Við þurfum að skilgreina betur hvar við stöndum vel og hvar við stöndum verr. Við höfum verið á harðahlaupum í átt að því að Ísland verði nýsköpunarland til framtíðar og þá megum við alls ekki gleyma jafnréttissjónarmiðunum, eins og ég kom líka inn á í ræðu minni.