152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[17:12]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Já, við höfum verið að skoða hvernig kynin nýta sér stuðningskerfi nýsköpunar sem við höfum verið á harðahlaupum við að styrkja. Það er mjög víðfeðmt og við þurfum aðeins meiri tíma til að geta kortlagt þetta betur. Við fyrstu sýn, á heildina litið, er staða kynjanna nokkuð jöfn þegar kemur að úthlutunum úr opinberum rannsóknarsjóðum en aftur á móti eru hærri styrkir veittir í greinum þar sem karlar eru í meiri hluta og enn hallar mikið á konur í öndvegisstyrkjum sem eru hæstu styrkirnir og úthlutað til lengsta tímabilsins sem dæmi. Konur sækja síður en karlar í samkeppnissjóðina sem styðja við atvinnulíf og nýsköpun. Konur eru þó almennt ekki ólíklegri til að fá styrk sæki þær um en miklu færri konur sækja um. Þar þarf að gera bót á. Hlutfall kvenna sem sækja í styrki úr slíkum sjóðum hefur þó hækkað síðustu ár. Þessi kortlagning er í vinnslu, við erum að vinna við að endurskoða þetta umhverfi í heild sinni. Við höfum verið að bæta í á öllum sviðum, hvort sem það er í sjóðum eða endurgreiðslum, og nú erum við svolítið að horfa á þetta í heild sinni í nýju ráðuneyti. Við erum að taka niður þá múra sem eru þarna á milli og jafnréttismálin eru eitt af því sem við erum að skoða. Það kemur alveg til greina, svo ég svari hv. þingmanni, að setja skilyrði, en við erum samt að skoða þetta og við þurfum að líta til þess að við náum ekki árangri í að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar nema við nýtum alla þjóðina í það verkefni.