fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta er mjög mikilvæg umræða og þess vegna þurfum við að kortleggja þetta vel og skoða. Eitt af tólunum sem við erum að vinna með í ráðuneytinu er nýsköpunargátt, svo fólk hafi aðgang að þeim tækifærum sem eru í boði með greiðum hætti, að við sjáum hvernig opinbera stuðningskerfið er, hvernig við kortleggjum alla þá möguleika og stuðning sem er til um allt land. Þetta er líka mælaborð nýsköpunar til að við sjáum hvernig við erum að hreyfa okkur, hvaða stöðu við erum í núna, hvað stöðu við vorum í þegar við byrjuðum á þessari innspýtingu og hvert við erum að fara á þessu kjörtímabili með þeim stuðningi sem sýnir sig í þessari fjármálaáætlun. Það er líka ótrúlega mikilvægt tól til að skoða og átta sig á því hvar við stöndum og því fagna ég sérstaklega Gagnatorgi Rannís, þar sem þetta er einmitt gagnsætt. Ég bind vonir við að enn meira gagnsæi verði í opinberum stuðningi til frambúðar.
Í lokin langar mig bara að nýta tækifærið og þakka fyrir þessa góðu umræðu um alla þessa málaflokka ráðuneytisins. Það eru gríðarleg tækifæri til að vinna að þessum málaflokkum með heildstæðum hætti. Ég tel að tækifærin séu eiginlega ótæmandi. Þau varða leið okkar til framtíðar, með sjálfbærni, nýsköpun, hugvit og jafnrétti að leiðarljósi, málaflokka sem komið hefur verið inn á hér í dag, hvort sem það eru háskólamálin, tækifærin þar, nýsköpunarmálin, fjarskiptamálin o.s.frv. Það eru tækifæri um allt land ef við fylgjum þeim eftir og við fáum mikinn stuðning við þau tækifæri í þessari fjármálaáætlun.