fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það geisar stríð í Evrópu og við hér á Íslandi höfum siðferðislegum skyldum að gegna við bræður okkar og systur í Úkraínu. OECD hefur metið það sem svo að það geti kostað Evrópu 0,25% af vergri landsframleiðslu á ári að taka á móti flóttafólki þaðan. Ef við yfirfærum það á Ísland, landsframleiðsluna hér, eru það um 7 milljarðar á ári. Til samanburðar fara t.d. 10 milljarðar á ári í þróunarsamvinnu og 4 milljarðar í útlendingamál samkvæmt fjárlögum þessa árs. Ég fæ bara ekki alveg séð, þegar ég fletti þessari fjármálaáætlun og skoða útgjaldarammana, að þar sé verið að koma til móts við þessar áskoranir, að þar sé verið að koma til móts við fjölgun flóttafólks og aukið álag með auknum framlögum. Mig langar því að biðja hæstv. dómsmálaráðherra um að útskýra fyrir okkur hvernig þetta horfir við honum og hvernig staðan í heimsmálunum, stríð í Evrópu, skyldur Íslands, ábyrgð okkar, samábyrgð gagnvart fólki í neyð, endurspeglast í þessari fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.