fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það er hægt að taka undir öll þau ágætu sjónarmið sem hv. þingmaður hélt hér uppi. Í viðræðum mínum við lögreglustjóra og við lögreglumenn þá gera allir á þeim vettvangi sér grein fyrir mikilvægi þessa. Við búum sem betur fer við þær aðstæður að lögreglan á Íslandi nýtur mikils trausts meðal almennings. Við þurfum auðvitað að treysta grunninn til að það traust megi haldast. Það er grundvallaratriði að löggæslan í landinu, lögreglumenn og aðrir sem þar starfa sem eiga að gæta að öryggi borgaranna sé einnig gætt, gæti öryggis í störfum sínum og að við veitum þeim öryggi þar.
Það eru mjög krefjandi spurningar gagnvart okkur í þessum breytta heimi hversu langt á að ganga í þeim efnum, en umræða hefur verið um ýmsa þætti sem geta spilað þar inn í og eru til skoðunar í ráðuneytinu akkúrat núna. Aftur á móti er grundvallaratriði, og það þarf ekki annað en kynna sér þær skýrslur sem lagðar hafa verið fram um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi og þá þróun, þá alvarlegu þróun sem er að eiga sér stað á þeim vettvangi, að það er gríðarlega mikilvægt að lögreglan fái auknar heimildir, víðtækari heimild til rannsókna. Við erum algjörir eftirbátar í regluverki okkar að þessu leyti í samanburði við þær þjóðir sem við erum í nánu samstarfi við í Evrópu og sérstaklega á Norðurlöndum. Þetta er samstillt átak. Það er skilningur alls staðar á mikilvægi þessa og framtíðin sýn mín liggur í því að við munum efla þessa þjónustu samhliða aukinni ábyrgð og það gerist auðvitað ekki í þessu tilfelli nema við aukum fjármagn til málaflokksins. Það er nú þegar þannig að yfir 80%, 82–84%, af kostnaði eru einmitt laun í rekstri þessarar embætta.